Dagbók
14.3.2010
Mín stund!



Kaffið er að renna í gegn og ég sit ein í eldhúsinu með þvottavélina mér til halds og trausts. Hún hefur mikið að gera í dag, en nú þegar held ég að hún hafi klárað 5 umferðir af þvotti. Skil samt lítið í því hvað þvottakarfan tæmist illa!
Eftir kaffibollann þarf ég að fara að undirbúa komu hóps af Svíum í gróðurhúsaheimsókn, svo ég þarf að koma tungunni í sænska gírinn, heja heja.
Annars komu nokkrir bikarar í hús í gær! Karítas vann barnaflokk í Ölfustölti Loga í Flúðahöllinni (!) á Björgvin og fékk bikar, Knútur keppti þar líka á Kráku og vann B-úrslit og svo trallaði hann sér bara í annað sætið
3.3.2010
Nýtt myndband, nýjar myndir og fleira
Fór á tónleika í Aratungu í dag með nemendum Tónlistarskólans, og eins og vanalega var ég hrikalega stolt og glöð með mína stelpu. Svo ég setti náttúrlega myndbandsupptöku hingað inn af tónleikunum. Karítas sagðist hafa verið útúr stressuð, en að mínu viti sést það ekki neitt, hún var næst síðust og því á taugum alla tónleikana
. Matthías Jens fór með mér, og á leiðinni í Aratungu sagði hann mér að það hefði verið rosalega góður matur í dag; æðisleg kjötsúpa alveg hreint. Hann er mjög matvandur drengurinn svo ég varð að vonum glöð og hugsaði með mér að hann hefði þá kanski bara borðað vel í hádeginu. Eftir tónleikana þegar við komum heim fór ég eins og góðri húsmóður sæmir beint í eldhúsið að hafa til kvöldmatinn. Það var í einfaldari kantinum, jógúrt og svo brauð sem ég smurði eftir bestu samvisku eftir því sem ég veit að hverjum og einum þykir gott (soðin egg fyrir strákana (eða "gagg" eins og Arnaldur segir), hummus fyrir Dórótheu og Knút, skinkusalat fyrir Karítas og svo framvegis). Matthías stendur yfir mér og getur varla beðið, svo ég spyr hvort hann sé svangur. "Já, ég borðaði svo lítið í hádeginu". Nú, hvái ég, en var ekki góður matur í hádeginu? "Jú, hann var nokkuð góður sko, en ég borðaði ekki svo mikið afþví að það var kjötsúpa"!!! Hvernig á að skilja þetta?
Svo er ég búin að setja inn myndir frá Skólahreysti 2010 þar sem Dóróthea var að keppa fyrir Grunnskóla Bláskógabyggðar. Ég fór með krökkunum sl. fimmtudag til Reykjavíkur og var í klappliðinu. Ég lýg því örugglega ekki en ég held ég hafi svitnað meira af spenningi yfir keppninni heldur en dóttir mín sem var pollróleg og stóð sig frábærlega. Skólinn okkar náði sínum besta árangri til þessa en þau lentu í 2. sæti í sínum riðli. Held að Dóróthea stefni á keppni líka á næsta ári; er komin á bragðið!
22.2.2010
Brask
19.2.2010
Status quo
Og þegar ég hugsa um Svíþjóð þá rifjast bara allt upp í einni belg og biðu; mormor, sumarbústaðurinn, Ringvägen og bara allt. Oh, hvað ég vildi að ég gæti orðið lítil í einn dag og farið aftur í tímann. Bullar, rulltårta, mormors skorpor, bada i Vänern, fiska på bryggan, grilla korv, plocka hallon, cykla till Revsand, vara lite rädd för åskan, höra klockan ticka tidigt en sommarmorgon när man vaknar vid stugan, utedass, svara femhundratjugotrettitre när telefonen ringer, reta sig på flugor o klia på myggbett, jag o mormor som cyklar till stugan, gungan við vedboden, varm asfalt under fötterna, bugg, GB glass, serietidningar, jordgubbar med mjölk, mormors lingonsylt....jag kan fortsätta i evighet. Bara í einn dag....
Og ég er þakklát fyrir allar góðar minningar sem ég á, vonandi get ég skilað einhverju svona til minna barna, svo þau geti staldrað við í amstri dagsins eftir hvað, ca 30 ár, og yljað sér við góðar minningar um horfna æsku! (þetta er sírópsvæmið, en stundum er lífið bara einfaldlega þannig! Status quo!)









