Dagbók
16.2.2009
Bara venjulegur mánudagur
Vor. Mmmm, farin að þrá vorið, finn meira að segja lyktina, svona ef ég er ekki of nálægt Tómasi Inga mínum, hann er með annars konar lykt sem ég þarf eflaust að losa hann við. En mikið verður gott að fá smá vor. Hlakka til að geta farið meira út (hef ekkert farið út núna síðan fyrir helgi þar sem TI er búinn að vera veikur með hita), þurfa ekki að dúða alla í michelin-búninga og allt það. Verð að segja að það verður gott þegar litlu snáðarnir geta gengið sjálfir og hlakka mikið til að sjá þá hlaupa um í grasinu í sumar. Þeir ganga nú með stuðningi en eru óttalega valtir og miklir spýtukarlar
Arnaldur er farinn að príla upp á alla hluti, svo nú þarf að passa hann vel svo hann detti ekki niður, því hann kann bara að príla aðra leiðina: upp! Verra þegar þarf að fara niður aftur!! Annars held ég svei mér þá að það sé ekkert nýtt, strákarnir eru jú alltaf að læra meira og meira, herma eftir öllu og finnst mjög fyndið að ulla (reka út úr sér tunguna) og frussa. Svo við frussum svolítið á daginn, syngjum og erum týnd.
Byrjaði svo að setja inn myndir fyrir febrúar, þær má líka sjá hér!
Byrjaði svo að setja inn myndir fyrir febrúar, þær má líka sjá hér!