Dagbók
2.3.2009
Fyrsta vetrarmót Loga
Nú er ég búin að fá myndir frá mínum dygga Jóni kokki sem er alltaf svo mikið til staðar á Logamótunum með myndavélina á lofti. Ekki tek ég myndir og ekki næ ég alltaf að sjá nema brot og brot, með hendurnar fullar af strákum alltaf. Strákastand á manni alltaf hreint!
En stelpunum mínum gekk þrusuvel á mótinu í gær, Karítas keppti á Eldjárn og skoraði feitt: fyrsta sætið með sóma og sæmd. Katrín varð á milli þeirra systra en Dóróthea keppti á Hersveini og náði þriðja sætinu líka með glæsibrag. Bóndinn fór svo mikinn á Bríeti í unghrossaflokki og náði "silfri" og svo tóku þeir Björgvin þriðja sætið í fullorðinsflokknum. Svo þau komu með medalíurnar klingjandi heim. Þetta var svo flott hjá veitinganefndinni að þau buðu uppá kaffi/heitt kakó og hjemmelavet bakkelsi, og var það kærkomið hjá kulnuðum mótsgestum. Arnaldur var ekki par ánægður með tilveruna í Hrísholti í gær, enda held ég að honum hafi hreinlega verið skítkalt! Hætti að hrína um leið og við fórum inn í bíl og settum hitann á. En ég ætla að skella inn nokkrum myndum af knöpunum mínum, höfundarréttur: Jón kokkur hinn elskulegi.
P.s. Ég er himinlifandi yfir viðbrögðunum við síðustu færslunni, og gef það hér með upp að ég set stefnuna á prjónakaffi á Gömlu Borg annaðkvöld, það er frítt inn og bara að mæta. Svo mæli ég með þessu fyrir þá sem eru með græna fingur og lítið pláss, og auglýsi eftir ferðafélögum í draumaferðina (er ekki talað um að dagdraumar séu hollir fyrir sálartetrið?)