Dagbók

6.3.2009

Það víbrar eitthvað svo loftið núna af spenningi. Það er eitthvað svo margt í gangi, en samt gengur lífið bara sinn vanagang. Best að reyna að ná þessu einhvern veginn fram í heilu lagi:

Dóróthea komst áfram í upplestrarkeppni grunnskólans í síðustu viku og ég var svo upp með mér að ég átti bágt með mig. Núna hefur hún nóg að gera við að æfa sig fyrir keppnina sem verður í Árnesi í næstu viku, en ég er eitthvað að skipta mér af og þykist vera leikstjóri og segi henni til. Vonandi að hún fríki ekki út á mér og standi sig bara áfram með prýði í upplestrinum. Stelpurnar eru svo báðar að æfa með Logakrökkunum fyrir sýninguna Æskan og hesturinn, og þar ríður Dóróthea í söðli og Karítas verður í keppnisbúning. D æfði sig í söðlinum í gær og vakti að vonum athygli í hverfinu, en í dag hljóp indíáni í hana (hún á nú ekki langt að sækja það hehe :-) og hún sleppti hnakknum á Dalrós svo hún fékk víst að kyssta fósturjörðina heldur hörðum kossi !!

Arnaldur getur staðið upp einn og óstuddur og stendur hreykinn, en er þvílíkt varkár að hann lyftir helst ekki fótunum frá gólfi heldur rennir öðrum fætinum varlega í áttina að mér og fleygir sér svo í fangið á mér. Tómas Ingi er hálfu skrefi á eftir og er að æfa sig í að standa upp líka. Matthías Jens missti bestu vinkonu sína úr  leikskólanum, en hún flutti í aðra sveit svo hann gæti orðið pínulítið vængbrotinn þegar þessi staðreynd mjatlast inn hjá honum, en sem betur fer er Magnús Skúli bestivinur farinn að mæta allan daginn, svo missirinn er minni. Ekki alltaf auðvelt að vera bara fjögra ára. Ég sótti hann í dag í leikskólann og hann spurði mig á leiðinni heim: "Mamma, hvað gerist þegar maður drukknar og deyr svo í bílslysi?" Ég reyndi að útskýra að það sé nú varla hægt þar sem ekki sé hægt að deyja tvisvar (!) en hvað segir maður við þessum óhagganlegu rökum: "Jú, vísst, ég hef oft séð svoleiðis!!"

Gleymdi sennilega að monta mig af Karítas í síðustu viku en ég fór á frábæra tónleika með blásarasveit tónlistarskóla Árnesinga í Ráðhúsinu í Þorlákshöfn sl. föstudag. Þar spiluðu þau ABBA- lög sem var hvert öðru betra og syrpu úr Shrek, svo ég fékk gæsahúð. Tók það upp svo það er aldrei að vita hvort ég komi sýnishorni inn á myndbandaplássið hérna... svona þegar andinn grípur mann og færi gefst.

Að endingu verð ég að segja frá því að það datt inn svo skemmtilegur tölvupóstur "inn um lúguna" í dag en Joel vinur okkar í New York og kærastan hans Natasha eru að fara að gifta sig og vilja endilega að við komum í brúðkaupið í sumar!! Ég er náttúrulega svo upprifin af þessu enda hefur okkur langað að fara til NY síðan á síðustu öld (hvað er maður orðinn gamall eiginlega?) og hvað þá í brúðkaup?? Þetta gæti bara orðið skemmtilegt, fyrst brúðkaup sl. haust í Kraká, og vonandi komumst við bara í stóra eplið, þótt tímasetningin gæti verið heppilegri fyrir okkur... En sjáum bara til, ég gleðst a.m.k. yfir fréttinni af væntanlegu brúðkaupi.  Svo bara af því að ég er að tala um New York, þá dettur mér Carrie Bradshaw í hug, og fyrir þá sem ekki fá svona litla ljósaperu í hausinn við þetta nafn, þá er hún aðalpersónan í sápuþáttunum Sex and the city, og í mínum huga sökudólgurinn að því að menn halda að allar konur eyði aleigunni í skókaup... Fékk þetta sent í pósti og læt það flakka með. Kíkið á og samhryggist með mér, en ég kaupi helst gúmmítúttur á útsölu í Nóatúniemoticon

Skrifað 6.3.2009 kl. 22:50 af Helenu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 7
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 15
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 13842
Samtals gestir: 4852
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 16:00:02