Dagbók
9.3.2009
Ekkert bergmál lengur
Þegar við hjónin (eða hjónaleysin þá) fluttum hingað í Friðheima, bergmálaði í húsinu, það var bara svo stórt utanum einungis okkur tvö. Ekki áttum við nú margar mublur heldur. Ég man þegar við vorum í sýningarleiðangri hingað inn með nokkrum ættingjum að systir mín tók lagið uppi á pallinum í stofunni, og þetta var eins og í tónlistarhúsi með nokkuð góðum hljóm bara. Nú eru sko heldur betur fleiri farnir að söngla hérna í húsinu; og aldrei hefði ég trúað því fyrir fjórtán árum að við ættum eftir að "sprengja utan af okkur" húsið!!! En það er nú svo, að ef allir eiga að fá sér herbergi, þá þarf skipulagsbreytingu! Og vitaskuld þarf að vera til gestaherbergi. Svo nú er búið að gata einn vegg til að setja upp hurð, til stendur að fylla upp í annað hurðargat, og svo flyst fólk milli herbergja svona vonandi á næstu mánuðum, ef allt gengur vel. Hjónaherbergið verður í okkar s.k. skóherbergi, búið verður til forstofuherbergi í geymslunni
, Karítas flyst í okkar herbergi og tvillingarnir fá hennar herbergi. "Og hvar á ég þá að vera?" spurði MJ áðan, orðinn alveg ringlaður á þessu öllu. Er það nema von.


Hér sést hvar nýja forstofan verður, en hún er öllu minni en núverandi er, og því fór ég í Ikea í dag að kaupa inn hillur og snaga, svo nú á að skipuleggja rýmið a la Ikea, og troða öllum skóm og útifatnaði voða nett og settlega í skipulag. Einmitt. En þar sem hilluberarnir voru ekki til á lager þarf ég að fara aftur í næstu viku, "jibbý".
Fleira sem ekki var til í dag var rauður Létt lopi í peysuna mína, því ég hafði í prjóna(óvita)skap mínum keypt of fáar dokkur um daginn, svo peysan mín verður bara með eina rauða ermi og hina??? Eins og nýju fötin keisarans, það er fljótlegast og ódýrast... en svo er að sjá hvort það hafist ekki uppá því einhvers staðar, mömmur eru fundvísar (auðvitað bauðst mín til að redda þessu, eins og hennar er von og vísa:-) En þangað til verð ég bara að prjóna eitthvað annað, eins og pils
sem ég "er búin að vera með á prjónunum" að prjóna.. Eins og ég hafi ekki nóg fyrir stafni með þessar fyrrnefndu breytingar og litlu strumpana klofandi yfir allt rykið og allt... En þetta verður fínt, og ég hlakka til að fá herbergi fyrir A og TI, þeir eru með dótið sitt svolítið út um allt eins og gengur og gerist, en síðast og ekki síst fá þeir sitt eigið svefnherbergi; og þá fáum við hjónin að eiga okkar herbergi fyrir okkur.....
Hér sést hvar nýja forstofan verður, en hún er öllu minni en núverandi er, og því fór ég í Ikea í dag að kaupa inn hillur og snaga, svo nú á að skipuleggja rýmið a la Ikea, og troða öllum skóm og útifatnaði voða nett og settlega í skipulag. Einmitt. En þar sem hilluberarnir voru ekki til á lager þarf ég að fara aftur í næstu viku, "jibbý".
