Dagbók

30.3.2009

Allt í GANGI :-)

Það hreinlega bergmálar á þessari síðu af orðaskorti, en auðvitað á það sínar einföldu skýringar. Ég er ein af þeim sem vantar tíma í sólarhringinn (skil ekkert í þessum jólasveini, á hann ekki að uppfylla einfaldar óskir eins og þessa? :-) En það eru semsagt framkvæmdir á heimilinu, og væri það til að æra óstöðugan að fara að þylja upp allt sem er í gangi hérna. Svona dregið saman í stutta setningu þá leiðir eitt af öðru, og ég er m.a. búin að taka búrið í gegn í ferlinu að koma drengjunum í eigið herbergi!! En herbergið okkar er að mestu tilbúið, vantar bara fataskáp, rafvirkjann í smá stuði, og svo tuskuna á loft, og þá er komið grænt ljós að byrja fólksflutningana! Varðandi forstofuherbergið vantar ennþá hillubera úr Ikea en þeir komu til landsins um daginn og allir þrír (!) seldust upp á nokkrum dögum hehe, svo fatahengið  er enn í biðstöðu.  Vorið virðist líka vera í bið ennþá, fengum smá sýnishorn um daginn svona rétt til að gera mann langeygan af vorþrá, en svo brast á með kuldatíð og jólasnjó aftur, og það er nú bara hundfúlt því ég er strandsett með vagninn heima og kemst lítið út. Sem er nú kanski ekki svo galið þegar maður hefur í nógu að snúast .....

Það er hins vegar ekki kyrrstaða hjá tvíburunum því  Arnaldur tók fyrstu skrefin sín 16. mars sl þegar pabbi hefði orðið 65 ára, og svo núna á laugardaginn þorði hann loksins að sleppa sér alveg og fattaði hvað það er gaman að ganga einn og óstuddur! Hann fékk svona "ljósaperu"-uppgötvun og ljómaði af gleði. Tómas Ingi tók eftir því að brósi fékk svaka athygli, sá hvað hann var að gera og ákvað að herma og gera svona líka!!  A er búinn að vera tilbúinn í gang í heilan mánuð en er ofurvarkár, öfugt við TI, sem er kærulausari og lætur bara vaða! Tómas Inga vantar bara meira jafnvægi og fer því mjög stutt í einu. Þeir hins vegar fara fleygiferð um húsið með dótakassana á hvolfi, og maður má bara passa sig að vera ekki fyrir þegar þrír gæjar með dótakassa rjúka um á öðru hundraðinu, því þetta er eitthvað fyrir Matthías Jens stóra bróður líka! Það verða stundum árekstrar og pústrar, en smá koss á bágtið virkar yfirleitt vel og þá kemst sá slasaði aftur á skrið. emoticon

Kíkið svo á hvað það getur verið gaman að vera tveir þegar maður á að fara að sofa!! (myndband)

Skrifað 30.3.2009 kl. 21:56 af Helenu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 15
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 13836
Samtals gestir: 4848
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 01:20:03