Dagbók

21.4.2009

Var að koma heim af bekkjarkvöldi hjá 5. og 6. bekk Reykholtsskóla þar sem okkur foreldrum var boðið að koma og skemmta okkur með krökkunum. Þau voru búin að undirbúa spurningakeppni  milli okkar foreldra sem var mjög skemmtileg enda vann mitt lið ;-) og fótboltakeppni milli barna og foreldra, en það endaði með jafntefli (skilst mér en ég var félagsskítur í því enda nýstigin upp úr miklum hóstaveikindum).  Mjög skemmtilegt allt og þau búin að gera þetta svo vel úr garði.

En það er sem sagt veikindalota hér í kotinu, ég er búin, Arnaldur er að klára sín veikindi en Tómas Ingi er í miðjum klíðum og líður illa. Fór með þá til læknis í gær, sem úrskurðaði þá m.a. með streptókokkasýkingu og ávísaði á sýklalyf. Og það get ég sagt ykkur er hreint ógeð, ég sver að það er táfýla af þessari mixtúru og svo á ég að pína þetta ofan í drengina mína tvisvar á dag í sjö (segi það og skrifa) sjö daga! Þeim finnst þetta svo mikill ógeðisdrykkur að ég þarf að reka þetta ofan í þá með sprautu lengst ofan í kok og láta þá gleypa eins mikið og hægt er! Ég veit ekki hvorum ég vorkenni meira; þeim fyrir að þurfa að þola þessa meðferð eða mér að þurfa að gera þetta?!!  emoticon

En svo þegar þeim batnar er stefnan tekin ÚT! Þórey var svo elskuleg að lána mér skó á litlu karlana (skórnir sem ég á af MJ eru of stórir, hann var stærri en þeir á þessum tíma :-) svo við getum farið að kíkja á krakkana í leikskólanum þegar við sækjum stóra bróður t.d. Arnaldur er alveg farinn að ganga og bara nánast hleypur, en Tómas Ingi er að taka sín fyrstu skref, mikið ánægður með sig þegar það tekst að ganga óstuddur nokkra metra án þess að detta á rassinn. Hann er í smá labbi-pásu núna í veikindunum enda ótrúlegt hvað hann verður reiður þegar honum líður illa (ekkert líkur mömmu sinni er það nokkuð hm....) og þá er ekki þolinmæði fyrir neitt, enda skiljanlegt, ég fékk sömu pestina og veit hvað klukkan slær.

Þar sem andagiftin varði mjög stutt í þessum skrifum er best að enda á því að óska öllum  Gleðilegs sumars og munið að kaupa miða í Víkingalóttó á morgun: það er STÓR vinningur og væri óskandi að einhver sem ég þekki njóti góðs af! Lifið í lukku emoticon

Skrifað 21.4.2009 kl. 20:39 af Helenu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 15
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 13841
Samtals gestir: 4852
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 14:23:09