Dagbók

25.4.2009

Vetrarmót, kosningar ofl.

Þriðja og síðasta vetrarmót Loga var haldið í dag í blíðskaparveðri. Klappliðið (Arnaldur og Tómas Ingi) sofnaði vært í bílnum, svo aldrei þessu vant sá ég bara alla keppendurna mína í braut!!emoticon  Þeim gekk vel, en það var komið heim með 1, 2 og 3 verðlaun: Knútur hlaut samanlagt fyrir öll mótin 2.sætið, Dóróthea það þriðja, og dúllan hún Karítas kom heim með bikar fyrir fyrsta sætið í barnaflokki (sjá nánar hjá Logakrökkum).  Svo mín er bara ánægð með sitt lið, enda hafa allir bara gaman af þessu móti og gera sitt besta.

    Eftir smá kaffisopa heima ákváðum við hjónin að fara ríðandi alla þessa löngu leið í Aratungu til að kjósaemoticon  enda finnst mér ákveðinn sjarmi í því að koma ríðandi á kjörstað, og veðrið í dag til fyrirmyndar til útivistar. En eins og mig klægjar nú í fingurna að koma sumarblómafræjunum í mold verður það að bíða einn daginn enn... verst hvað dagarnir endast eitthvað stutt! Strákarnir eru ennþá í innigír því kvefið er þrálátt, og sofa inni svo það er "stutt í keðjunni" hjá manni núna! En stendur nú vonandi til bóta, og mér verður hleypt í fræin vonandi bráðlega!

Annars grunar mig að meðfram téðum veikindum strákanna sé Arnaldur að taka hvorki meira né minna en fjórar tennur í einu, allar í neðri góm, geri aðrir betur!! Og T.I. er að æfa göngutaktana á meðan MJ spilar samstæðuspil í gríð og erg. "Busy" lið eitthvað!

Fór annars í mikla stuðferð í gær með bekknum hennar Karítasar til Reykjavíkur. Allar 6 stelpurnar í bekknum voru með mér í bíl og var spilað gat á  Pottþétt 49 á hæsta styrk á leiðinni!!  Stefnan var fyrst tekin á Hamborgarabúlluna, og þar gúffað í  sig hamborgara og frönskum, en svo var haldið í keiluhöllina í stuðið þar! Strákarnir héldu vel "á spöðunum" og spiluðu hátt í þrjár umferðir á meðan stelpurnar dúlluðu sér meira í þessu en allir höfðu gaman af, þ.m.t. við kellurnar sem keyrðum, og ýmsar aðferðir við keilufellingar prófaðar!!. Stuðinu var líka haldið áfram á leiðinni heim í bílnum svona framan af, en svo sljákkaði aðeins í okkur öllum enda dagurinn langur og fjörið búið að vera gífurlegt!  Frábær skemmtun og mikil tilbreyting frá mínu daglega amstri við annað! Mæli með þessu emoticon  !!

Skrifað 25.4.2009 kl. 20:04 af Helenu

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 28
Gestir í gær: 9
Samtals flettingar: 13864
Samtals gestir: 4857
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 00:18:26