Dagbók
26.4.2009
Myndir og myndband
Er að fara að setja inn nokkrar myndir og útúrkrúttlegt myndband af Tómasi Inga í stuði!
Hef annars steingleymt að segja frá því að við stöndum náttúrlega í stórframkvæmdum enn og aftur, en við erum að stækka við hesthúsið í báða enda. Það verður kaffistofa öðrum megin sem snýr að gróðurhúsunum, og svo "hlaða" og móttökurými sem snýr að vellinum. Kaffistofan verður stórglæsileg með útsýni (eina húsið með útsýni hér í skóginum í Friðheimum)!! Og svo er það merkilega: Búið er að steypa gólf í tilvonandi hænsnakofa!
Svo er bara að sjá hvenær hægt verður að flytja inn í það, en hálfnað verk þá hafið er, ekki satt!? Stefnt er að því að hafa hesthúsið alveg tilbúið áður en sýningar hefjast í vor, en Knútur ætlar einnig að koma upp kennslugerði við hliðina á hesthúsinu, en það er langt komið og vantar bara nokkra bíla af möl og smá vélavinnu, sem og að sjóða saman gerðið. Hann verður nú ekki lengi að rumpa því af þessi elska! En kíkið á myndirnar...