Dagbók
28.5.2009
Ný myndbönd
Þá er skólanum að ljúka hjá krökkunum, og í gær var útskrift úr tónlistarskólanum í Aratungu. Setti inn myndbönd af stelpunum að spila. Karítas lauk formlega 2.stigi í klarinett-náminu, en spilunarþáttinn kláraði hún í fyrra og tónfræðina núna í ár. Þær eru glimrandi duglegar báðar, og gaman að sýna hér það sem þær spiluðu. Þegar við svo komum heim úr Aratungu mættu okkur þrír föngulegir herramenn á traktor í innkeyrslunni, einn frekar sveittur og tveir grátandi:
Svo þeir voru allir fegnir þegar við stelpurnar björguðum A og TI úr prísundinni; pabbinn gat þá haldið áfram að keyra mold af bílaplaninu í friði.
Það er einmitt búið að vera mikið um að vera hér heima síðustu vikurnar (ja, bara svona aðeins meira en venjulega). Hesthúsið er tilbúið svo gott sem, móttökurýmið og kaffistofan, það er verið að reisa kennslugerði þar sem draslarahaugurinn var áður, búið að snyrta og fegra við Hjáleiguna og bílastæðin þar, og síðast en ekki síst er búið að setja upp skilti úti við veg og gera þar heilmikinn steinagarð. Og nú á loksins að fara í að græja druslubeðið hér við innganginn á mínu fagra húsi!
Ég er svo útskrifuð af námskeiðinu sem ég fór á hjá Útflutningsráði: Konur í útrás, en þar lærði ég ýmislegt gagnlegt varðandi markaðssetningu og ferðamál ofl, að ég tali nú bara ekki um það sem víkkaði út hjá mér minn persónulega sjóndeildarhring. Allt til að gera gott betra!
Og þar sem Freydís er búin í sínum skóla og farin að vinna hjá okkur í sumar er ég farin að komast í gróðurhúsin og sitthvað fleira, og það get ég sagt ykkur er bara rosalega gaman! Það var kominn tími á að hleypa kellu út! Nú er ég bara iðandi í skinninu að framkvæma allt sem mér hefur dottið í hug síðasta árið, og mesta vinnan er að halda aftur af sér: tíminn leyfir víst ekki allt, því þegar allt kemur til alls eru bara 24 tímar í sólarhringnum ennþá. En það besta er að það kemur alltaf nýr dagur, og það sem ekki vannst tími fyrir í dag, er bara hægt að setja á stefnuskrána á morgun (eða hinn ef því er að skipta). Njótið dagsins!