Dagbók
1.6.2009
16 mánaða í dag
Þá eru litlu guttarnir komnir í rúmið eftir nokkuð annasaman dag; verð að viðurkenna að þeir taka vel á taugarnar í manni suma daga. Eins og í dag. Þeir hafa sofið vel (tvo góða lúra þótt þeir séu að jafnaði bara að sofa einu sinni á dag núna), borðað þokkalega (þótt matarlystin sé frekar brokkgeng auk þess sem þeim finnst ekki sami matur góður/vondur) en þeir hafa látið hafa vel fyrir sér og haft hátt! Svo það er hrikalega gott að vera búin að koma þeim í rúmið. Ekki þar með sagt að þeir séu sofnaðir; nei, svo "gott" er það nú ekki enda klukkan rétt að verða hálf átta og vanalega sofna þeir klukkan átta (regla hér á bæ :-) en þeir eru eitthvað að druslubuskast og ég get skriðið upp í sófa með tölvugarminn í smá stund! Það er verið úti öllum stundum þegar veður leyfir (það er þó ansi erfitt að vera í stígvélum þegar maður er bara rúmlega eins árs) svo stórt fólk og smátt verður bara þreytt og lúið í lok dags eftir hlaup til og frá. Arnaldur og Tómas Ingi eru náttúrulega í könnunarleiðangri alla daga, og við hin á hlaupum á eftir þessum óvitum!
svo er Dóróthea alltaf svo sæt og lekker :D

Á laugardaginn var skelltil ég mér í heimsókn í Skálholt með strákana og Dórótheu lekkru (:-) og þar heilsuðum við aðeins uppá kusurnar í fjósinu. Strákarnir litlu voru fyrst frekar skelkaðir en tóku fljótlega við sér og ætluðu helst inn í kálfastíurnar eins og Matthías stóri bróðir!
Núna um Hvítasunnuhelgina er búið að vera býsna gestkvæmt hjá okkur, og er það bara gaman að hitta fólk
Þórey, Sólon og börn komu við í morgunkaffi í gær m.a. (það heyrðist varla í barnaskaranum þó þau væru 8 samankomin undir einu þaki, þar af 6 undir 5 ára aldri) og svo komu hjón í heimsókn sem við höfum ekki séð í 15 ár eða svo; þau litu eins vel út nú eins og þá, en þremur börnum ríkari! En núna ætla ég að fara að hringja í mömmu og spjalla aðeins, svo hún þurfi ekki að fá allar fréttir héðan af þessari heimasíðu hahaha!
svo er Dóróthea alltaf svo sæt og lekker :D
Núna um Hvítasunnuhelgina er búið að vera býsna gestkvæmt hjá okkur, og er það bara gaman að hitta fólk