Dagbók
12.1.2010
Gott í matinn
Plómutómatar skornir villivekk, settir á heita pönnu með dass af olíu. Maldonsalti skvett yfir og handfylli af saxaðri basilliku, að ógleymdu smá timjan. Þetta er soðið í dágóða stund og lokið tekið af öðru hvoru til að fylla vitin af angan engri líkri (og hræra, ekki slæmt að hræra af og til líka). Einum teningi af kjötkrafti er svo stungið laumulega ofan í sósuna og haldið áfram að malla. Á meðan, svo maður hafi nú eitthvað fyrir stafni, eru brytjaðar kjúklingabringur brúnaðar á pönnu, saltað og piprað að smekk. Blaðlaukur og broccoli skorið passlega og sett útá kjúklinginn á pönnunni. Í annan pott er soðið pasta, t.d. skrúfur eða penne, al dente, nota bene, annars verður allt svo slepjulegt. Ef manni finnst tómatadásemdin of þunn má dassa Maizena mjöli yfir til að þykkja herlegheitin, en annars er tómatasósunni hellt yfir kjúklinginn og grænmetið í hinni pönnunni, og lagt á borð. Þegar búið er að kveikja á kertunum og kalla gjörsovel útí húsið er saxaðri steinselju stráð yfir með elegans og svo borið á borð. Ekki er verra þegar hvítvín fyrirfinnst í húsinu fyrir fullorðna, og svo....mmmmm.
Fróðleikur um tómata
Við :-)