Velkomin á heimasíðuna mína!


Ég heiti Helena Hermundardóttir og bý í Friðheimum í Biskupstungum.   Ég er gift Knúti Ármann og eigum við 5 yndisleg börn: Dórótheu, Karítas, Matthías Jens og tvíburana Arnald og Tómas Inga.

Hér í Friðheimum ræktum við tómata allt árið um kring, hestamennska er stunduð af miklu kappi og á sumrin eru hér hestasýningar fyrir ferðamenn.

Sé ég spurð um hvaða áhugamál ég hafi, veit ég varla hverju ég á að svara þar sem sjaldnast gefst tími fyrir annað en að sinna börnum og búi, allavega þessa dagana.

En það er kanski aðaláhugamálið mitt að koma börnunum til manns og gera Friðheima að ennþá betri stað til að búa og vera á. Þar fyrir utan hef ég gaman af reyfurum, vinna í garðinum og spá í gróðurinn, prjóna af og til, ferðast, og síðast en ekki síst gleðjast yfir lífinu í góðra vina hópi. Eins eru hestaferðir allra meina bót! Listinn gæti greinilega verið endalaus, enda er svo margt skemmtilegt hægt að gera, enda leiðist mér aldrei!! Svo er ég ennþá að spá í hvað ég eigi að verða þegar ég verð stór...

Flettingar í dag: 7
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 15
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 13842
Samtals gestir: 4852
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 16:00:02